15.05.2012 16:31

Landsmót - miðar

Nú fer hver að verða síðastur til að kaupa miða á Landsmót 2012 í forsölu en henni lýkur á miðnætti í kvöld þann 15. maí.
Eftir það hækkar miðinn umtalsvert. 

13.05.2012 15:00

Myndir

Þá eru komnar myndir inn í myndaalmbúmið - þær eru teknar af Inga Tryggvasyni og þökkum við honum fyrir þær. Myndin sem hér birtist er af sigurvegurum í fjórgangi unglinga.

13.05.2012 00:12

Íþróttamót - úrslit

Þá er lokið samantekt úrslita íþróttamótsins okkar. Myndir hafa ekki borist ennþá en vonandi stendur það til bóta. Úrslitin eru einnig kominn ínn á vef Hestafrétta en oftast er með ólíkindum hvað þeir eru fljótir að birta það sem til þeirra er sent. Hafi þeir þakkir fyrir. En hér eru úrslit íþróttamótsins. 

12.05.2012 21:39

Aðeins af íþróttamóti

Þá er lokið glæsilegu íþróttamóti. Það hófst kl. 10 í morgun og lauk með gæðingaskeiði rétt um kl. 20:20. Skráningar voru fyrir rest milli 90 og 100. Mótið gekk vel í alla staði og eiga starfsmenn og keppendur mikið hrós skilið fyrir sinn þátt. Veðrið lék við okkur, aðeins hvessti stutta stund um miðjan dag en svo lyngdi aftur. Nýuppgerður völlurinn stóðst álagið með prýði og sýnt að nú er aðstaða okkar til mótahalds með allra besta móti. 
Úrslit og jafnvel myndir koma vonandi hér inn á síðuna síðar í kvöld. Háar einkunnir voru gefnar oft á tíðum, einkanlega í opna flokknum í tölti og fjórgangi. Áhorfendur sem voru töluvert margir fengu því eitthvað fyrir sinn snúð eins og sagt er. Einn knapi, Heiðar Árni Baldursson, fékk plús frá dómara en það er gefið fyrir sérlega fallega reiðmennsku. 

11.05.2012 20:21

Íþróttamótið - Ráslisti

Uppfært kl. 23:50. 
Þá er ráslistinn tilbúinn, hann hefur ekki tekið miklum breytingum en þó aðeins. - er uppfærðan lista að finna hérna undir. 

11.05.2012 16:56

Íþróttamót - keppendalisti

Uppfært kl. 18:20. Skráningar eru alls 100 þannig að hér er um stórmót að ræða. 
Keppendalistinn liggur fyrir  - eftir er að ganga frá ráslistum en þeir munu birtast síðar í kvöld ef allt gengur að óskum. Listinn sem hér fyrgir er listi yfir keppendur flokkaður eftir greinum. Þetta er ekki ráslisti. Ef þið finnið villur þá endilega senda póst á Kristján Gíslason. Það auðveldar vinnuna á morgun ef lítið sem ekkert þarf að lagfæra. 

Röð keppnisgreina er eftirfarandi, (birt m. fyrirvara) 

Fjórgangur (börn - unglingar - ungmenni - 1. flokkur) 
Fimmgangur
Tölt (börn - unglingar - ungmenni - 1. flokkur)

Úrslit í sömu röð

Gæðingaskeið. 

09.05.2012 23:00

Völlurinn

Í kvöld var lokið við að "girða" völlinn og er hann orðinn hinn glæsilegasti á að líta. Eiga allir þeir sem að þessari framkvæmd komu mikið hrós skilið en verkinu var stjórnað af vallarnefnd félagsins. Nú er semsagt allt að verða klárt fyrir mótið á laugardaginn en skráningu á það líkur nú í kvöld. Myndin er tekin á sama stað og myndin sem birtist á sunnudaginn hér neðar á síðunni og sýnir vel breytinguna. 
 

07.05.2012 23:36

Vallarframkvæmdir

Hópur félaga kom saman í kvöld og hóf vinnu við að ganga frá vellinum. Vinnunni miðaði vel og verður henni haldið áfram á morgun - Félagar eru hvattir til að mæta og leggja lið. Myndir í myndaalbúmi lýsa þessu betur. En allt verður orðið klárt fyrir helgi og verður völllurinn þá orðinn hinn glæsilegasti, eins virðist vel hafa tekist til við niðurlögn yfirborðsefnis. 

06.05.2012 23:11

Endurbætur vallarins

Eins og margir hafa tekið eftir eru hafnar verulegar framkvæmdir við endurbætur á vellinum okkar. Staurar og kaðlar hafa verið fjarlægðir og völlurinn heflaður. Í dag var síðan bætt á hann yfirborðsefni og gengið frá því á viðeigandi hátt. Þá er eftir að setja nýja "girðingu" umhverfis hann og hefst sú vinna á morgun, þá eru félagar velkomnir til verka. Reka þarf niður 25 mm járnteina sem plaststaurar verða svo festir á. Þetta verður svo allt klárt um helgina en þá er opið íþróttamót. 




06.05.2012 13:27

Opið íþróttamót Skugga

Hestamannafélagið Skuggi heldur opið íþróttamót á velli félagsins við Vindás, í
Borgarnesi, laugardaginn 12 maí n.k.
Undankeppni byrjar kl. 10:00. Byrjað verður á fjórgangi, síðan fimmgangur og svo tölt.

Ráslistar verða birtir á heimasíðu félagsins (www.hfmskuggi.is) fyrir kl. 20 á
föstudag.

Keppt verður í eftirfarandi flokkum og greinum:
Barnaflokkur
- tölt og fjórgangur
Unglingaflokkur
- tölt og fjórgangur
Ungmennaflokkur
- tölt og fjórgangur
Opinn flokkur
- tölt, fjórgangur, fimmgangur og gæðingaskeið.

Skráningargjöld eru kr. 2.000.- fyrir fyrstu skráningu og kr. 1.000.- fyrir næstu
skráningar (kr. 1.000/500- í barnafl.)
Skráningargjöld greiðist inn á reikning 0326 - 13 - 004810, kt: 481079-0399, fyrir kl.
24:00, miðvikudaginn 9 maí, n.k. Sendið kvittun á: helga.bjork@simnet.is
Skráning (IS númer hests, kennitala knapa og upp á hvora hönd á að byrja) þarf að
berast fyrir kl. 24:00, miðvikudaginn 9. maí á netfangið: jonkristj@hotmail.com
Nánari upplýsingar fást hjá Sigga í síma : 848-8010.

Hægt er að leigja stíur fyrir keppnishesta í reiðhöllinni Faxaborg fyrir kr. 1.000.-
Pantanir á stíum hjá Pétri eða á netfanginu: petursum@hotmail.com

Fótaskoðun fer fram í reiðhöllinni Faxaborg og þar verður jafnfram hægt að hita upp
hesta ef þannig stendur á.
Mótanefnd Skugga.

06.05.2012 00:01

Reykjavíkurmeistaramót 2012

Skuggafélagar koma víða við í leik og starfi. Nú stendur Reykjavíkurmeistaramótið yfir og þar koma félagar okkar við sögu. Gyða Helgadóttir er í A úrslitum í tölti barnaflokks. Frábær árangur og óskum við henni góðs gengis í úrslitum.

Fimm efstu í forkeppni:

1     Glódís Rún Sigurðardóttir           Kamban frá Húsavík    Ljúfur     6,57 
2-3     Magnús Þór Guðmundsson           Drífandi frá Búðardal    Hörður     6,17 
2-3     Rúna Tómasdóttir           Brimill frá Þúfu í Landeyjum    Fákur     6,17 
4     Ylfa Guðrún Svafarsdóttir           Héla frá Grímsstöðum    Fákur     5,93 
5     Gyða Helgadóttir           Hermann frá Kúskerpi    Skuggi     5,70 

03.05.2012 00:02

Hagabeit og tiltekt

Sendar hafa verið út tvær auglýsingar á póstlistann. Er önnur fræa beitarnefnd um umsókn um hagabeit í sumar en þar kemur fram að sækja skuli um fyrir 10. maí og hin er um tiltekt í hesthúsahverfinu og er frá umhverfisnefndinni. Nú er bara að kanna hvað sækja þarf um fyrir mörg hross og ekki síður taka frá tímann eftir hádegi á laugardag og nota hann í tiltekt í hesthúsahverfinu og næsta nágrenni. 

01.05.2012 23:44

Námskeið í Mótafeng og Kappa

Áhugasamir athugið að námskeiðið er miðvikudaginn 2. maí kl. 19:30. Öllum félögum er nauðsynlegt að hafa innan sinna vébanda nokkra félaga sem kunna á þessi verkfæri, þá er unnt að dreifa vinnunni á meira.  

Nú er mótatímabil okkar hestamanna hafið og vorverkin eru ýmisleg þegar að þeim málum kemur. Tölvunefnd LH heldur nú á vordögum námskeiðaröð í mótaforritunum Kappa og Sportfeng og hér fyrir neðan má sjá dags- og tímasetningar sem hafa verið fastsettar.

Þið eruð hvött til að kynna þessi námskeið vel í ykkar félögum, senda tilkynningar á póstlista og heimasíður og munið að þessi þekking er nauðsynleg í hverju félagi og gott að mennta sem flesta í notkun þessara forrita.

Ekkert gjald er tekið fyrir þátttöku, nóg að mæta með skriffæri þar sem Handbók Kappa og Sportfengs verður dreift á staðnum. Athugið þó að fyrir þá sem vilja undirbúa sig, þá er handbókin aðgengileg á vef Sportfengs: http://www.sportfengur.com/SportFengur/temp/Handbok.pdf
Borgarnes 2.maí - kl. 19:30
Selfoss 3.maí - kl. 19:30
Sauðárkrókur 3.maí - kl. 19:30
Reykjavík 8.maí - kl. 19:30
Egilsstaðir 9.maí - óákv.
Skráning á námskeiðin fer fram á hilda@landsmot.is

01.05.2012 23:28

Firmakeppnin

Firmakeppnin var haldin við góðar aðstæður í dag. Þátttaka var góð, sérstaklega í barna - og karlaflokkum. Eins voru margir sem mættu í pollaflokkinn en það fengu allir verðlaun. 14 börn mættu til leiks, 8 unglingar, 9 konur og síðan 25 karlar. Að keppni lokinni var kaffisala og verðlaunaafhending í félagsheimilinu. Sigurvegari ´ði barnaflokki var Aron Freyr Sigurðsson, í unglingaflokki Guðbjörg Halldórsdóttir, kvennaflokkinn sigraði Heiða Dís Fjeldsteð og Yngvar Þór Jóhannsson karlaflokkinn. Nánari upplýsingar koma síðar. Nokkrar myndir eru í myndaalbúminu, en myndin sem hér fylgir er af sigurvegurum í unglingaflokki. 


01.05.2012 11:43

Skemmtimót - úrslit

Mótanefndin stóð fyrir stórskemmtilegu "Skemmtimóti" s.l. laugardag í Faxaborg. Keppt var í ýmsum greinum, flestum óhefðbundnum og var keppnin liðakeppni (keppni milli hesthúsa/býla). Fjöldi manns mætti og voru skráningar um eða yfir 130. Var af þessu hin besta skemmtun og á mótanefndin miklar þakkir skildar fyrir framtakið. Um kvöldið var svo verðlaunaafhending en vegleg verðlaun voru í boði fyrir stigahæstu liðin. Voru þau gefin af Lögfræðistofu Inga Tryggva, Loftorku og LímtréVírnet. Margrét Hildur Pétursdóttir sendi nokkrar myndir sem er að finna myndaalbúminu og er henni þakkað það. 
      Úrslit urðu sem hér segir.

1. Selás 7 - 48 stig

2. Selás 3 - 39 stig

3. Vindás 1A - 38 stig

4. Vindás 3 - 38 stig

5. Vindás 2 - 32 stig

6. Hrafnkelsstaðir - 30 stig

7. Selás 5 - 27 stig

8. Vindás 10 - 23 stig

9. Vorboði - 22 stig

10. Selás 9 - 21 stig

11. Ferjubakki 3 - 20 stig

12. Vindás 7 - 15 stig


Flettingar í dag: 439
Gestir í dag: 82
Flettingar í gær: 291
Gestir í gær: 82
Samtals flettingar: 252073
Samtals gestir: 55245
Tölur uppfærðar: 16.5.2012 22:20:55